Í lok nóvember var öllu íbúum Seltjarnarness boðið til hátíðarhalda í tilefni þess að Tónlistarskóli Seltjarnarness á 30 ára afmæli á þessu ári. Fjölmennt var á hátíðinni sem tókst einstaklega vel.
Í lok nóvember var öllu íbúum Seltjarnarness boðið til hátíðarhalda í tilefni þess að Tónlistarskóli Seltjarnarness á 30 ára afmæli á þessu ári. Fjölmennt var á hátíðinni sem tókst einstaklega vel.
Fjölbreytt tónlistardagskrá var í boði eins þar sem eldri og yngri nemendur skólans komu fram. Einnig lék Skólalúðrasveitin undir stjórn Kára H. Einarssonar básúnukonsert eftir Manfred Scneider þar sem Helgi Hrafn Jónsson lék einleik. Helgi er einn þeirra fjölmörgu er gert hafa tónlistina að aðalstarfi eftir nám í skólanum.
Hannes Flosason fyrsti skólastjóri og stofnandi Tónlistarskólans flutti ávarp en auk þess ávörpuðu Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri og Sigurgeir Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri hátíðargesti.