Fara í efni

Tónlistarnemum bættur upp kennslutími

Á fundi bæjarráðs Seltjarnarnesbæjar í morgun var samþykkt tillaga frá stjórnendum Tónlistarskóla Seltjarnarness um að bæta tónlistarnemum í skólanum upp þá kennslu sem þeir urðu af vegna verkfalls félagsmanna FT í október og nóvembermánuði sl.

Á fundi bæjarráðs Seltjarnarnesbæjar í morgun var samþykkt tillaga frá stjórnendum Tónlistarskóla Seltjarnarness um að bæta tónlistarnemum í skólanum upp þá kennslu sem þeir urðu af vegna verkfalls félagsmanna FT í október og nóvembermánuði sl. Þannig verður komið til við móts við þarfir nemenda skólans hvað nám og námsframvindu varðar og bættur sá skaði nemenda sem missir kennslu annars hefði í för með sér.


 Stjórnendur skólans munu ásamt kennurum sjá um skipulag þessarar kennslu, sem verður innt af hendi og að fullu lokið á vorönn 2015. Ekki kemur til endurgreiðslu skólagjalda vegna verkfallsins. Bæjarráð fagnar tillögu skólastjórnenda um að bæta nemendum þá tíma sem féllu niður.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?