Fara í efni

Tímabundin lokun Suðurstrandar frá Nesbala að Bakkagranda fimmtudaginn 31. mars vegna kvikmyndatöku

Um er að ræða tímabundna hindrun umferðar vegna kvikmyndatöku á Suðurströnd við Bakkatjörn en umferð verður trufluð/stöðvuð í nokkur skipti á tökutímanum.
Fimmtudaginn 31. mars hefur kvikmyndafyrirtækinu Truenorth Iceland verið veitt tímabundin heimild til hindrunar á umferð um Suðurströnd á milli Nesbala og Bakkagranda vegna kvikmyndatöku. Umferð verður trufluð / stöðvuð í nokkur skipti á tökutímanum og verður það gert með merkingum og lokunarpóstum auk þess sem starfsmenn Truenorth verða á staðnum. Bílastæði við golfvöllinn verður nýtt undir tækjabíla.





Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?