Fara í efni

Þór Sigurgeirsson nýr bæjarstjóri á Seltjarnarnesi

Ráðningin var staðfest á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar sem fram fór í gær, miðvikudaginn 8. júní. Þór tók í dag við lyklunum úr hendi Ásgerðar Halldórsdóttur sem lét af störfum sem bæjarstóri þann 31. maí sl.

Á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar sem fór fram síðdegis í gær, miðvikudaginn 8. júní var staðfest ráðning Þórs Sigurgeirssonar sem bæjarstjóra fyrir kjörtímabilið 2022 - 2026. Hann tekur við af Ásgerði Halldórsdóttur sem látið hefur af störfum eftir 20 ára starf í bæjarstjórn, þar af í 13 ár sem bæjarstjóri.

Á fundinum var jafnframt ákveðið að Ragnhildur Jónsdóttir mun gegna embætti forseta bæjarstjórnar og að Magnús Örn Guðmundsson verður formaður bæjarráðs.

Þór var bæjarfulltrúi Seltjarnarnesbæjar á árunum 2006 til 2010. Hann var jafnframt formaður Umhverfisnefndar og  fulltrúi Seltjarnarnesbæjar í stjórn Sorpu bs. Þór hefur starfað við sölu – og markaðsstörf undanfarin ár lengst af við vátryggingar fyrirtækja og einstaklinga. Nú síðustu ár sem sölu- og verkefnastjóri hjá Rými.


Faðir Þórs, Sigurgeir Sigurðsson var sveitar- og bæjarstjóri Seltjarnarness í röska fjóra áratugi og lengst allra sveitarstjórnarmanna. Hann lét af störfum fyrir réttum 20 árum, vorið 2002.

“Mér þykir afar vænt um þessi tímamót og ég hlakka mikið til að starfa fyrir og með bæjarbúum og starfsfólki næstu árin. Sama má segja um samstarf við aðra bæjarfulltrúa og allt það góða fólk sem er að taka sæti í nefndum og ráðum bæjarins” er haft eftir Þór, nýjum bæjarstjóra Seltjarnarnesbæjar þegar hann tók í dag við lyklinum að bæjarskrifstofunni úr hendi Ásgerðar.


Þór er boðinn velkominn til starfa og óskað velfarnaðar í starfi sínu sem bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar.



Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri tekur við lyklinum úr hendi Ásgerðar Halldórsdóttur fráfarandi bæjarstjóra.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?