Terra hefur undanfarin ár sinnt úrgangshirðu við heimili á Seltjarnarnesi og haldið um þráðinn í þeirri mikilvægu þjónustu. Á vormánuðum var verkið boðið út, þar sem samkeppni var ríkjandi.
Eftir ítarlega skoðun á tilboðum og greiningu á kostum hverra bjóðenda var niðurstaðan sú að halda áfram samstarfi við Terra. Samningurinn, sem gildir til ársins 2029, felur í sér áframhaldandi þjónustu Terra við íbúa bæjarins, sem tekur til alls úrgangs frá heimilum. Samkvæmt samningnum mun Terra leggja áherslu á framúrskarandi þjónustu og aukna áherslu á endurvinnslu og umhverfisvænar lausnir, sem er í takt við stefnu bæjarins í umhverfismálum.
Undirritun verksamningsins fór fram á dögunum, þar sem Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Valgeir Baldursson, framkvæmdastjóri Terra staðfestu áframhaldandi samstarf.
"Mér líst vel á áframhaldandi samstarf við Terra. Verkefnin eru krefjandi í nýju sorpflokkunarkerfi sem innleitt var hér síðasta ári. Nýja kerfið hefur farið vel af stað og hnökrum fer fækkandi. Aðal atriðið er öflug þjónusta við íbúa sem felst í aukinni tíðni losana frá því sem var í upphafi nýja kerfisins,“ segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.
Valgeir Baldursson tekur undir það og segir að Terra sé spennt fyrir að taka næstu skref í þróun þjónustunnar á Seltjarnarnesi. „Við höfum lagt mikið upp úr því að þróa umhverfisvænar lausnir og efla þjónustuna með íbúum bæjarins í huga. Með þessum nýja samningi ætlum við að halda áfram að veita framúrskarandi þjónustu.“
Samningurinn tryggir að Terra haldi áfram að vera leiðandi aðili í úrgangshirðu á Seltjarnarnesi og tryggir íbúum sveitarfélagsins trausta og áreiðanlega þjónustu næstu fimm árin.