Fara í efni

Tafir hafa orðið á sorphirðu vegna veðurs og snjóþunga

Terra hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að tafir hafa orðið á losun í vikunni vegna veðurs en losun byrjar á morgun. Íbúar eru beðnir að moka snjó frá tunnunum og tryggja gott aðgengi.

TILKYNNING frá Terra vegna sorphirðu en tafir hafa orðið á losun í þessari viku vegna veðurs og mikils snjóþunga. Reiknað er með að losun geti byrjað í hverfum Seltjarnarness á morgun fimmtudag. Íbúar eru beðnir um að moka snjó frá tunnunum og tryggja gott aðgengi að þeim svo allt gangi vel fyrir sig.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?