Fara í efni

Tafir á sorphirðu vegna ófærðar

Íbúar eru hvattir til að moka frá sorptunnum sínum og tryggja gott aðgengi að þeim svo hægt verði að losa þær.
Afar mikilvægt er að tryggja aðgengi og moka frá tunnum svo hægt sé að losa þær.
Afar mikilvægt er að tryggja aðgengi og moka frá tunnum svo hægt sé að losa þær.

Aukið snjómagn hefur mikil áhrif á sorphirðu og má búast við því að sorphirða verði á eftir áætlun næstu daga. Íbúar eru eindregið hvattir til að moka frá sorpgeymslum sínum til að greiða leið sorphirðufólks að tunnunum þegar það verður á ferðinni svo tryggja megi að tunnurnar verði tæmdar. Ennfremur er mikilvægt að bílar o.fl. hindri ekki aðgengi að tunnunum því ekki er hægt að tæma tunnur sem ekki er hægt að komast að. Allt kapp er lagt á að klára öll hverfi fyrir áramótin þó hægt gangi.

Bæjarbúar eru einnig hvattir til að nýta sér endurvinnslustöðvar Sorpu nú eftir jólin.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?