Fara í efni

Sundlaugar, íþróttamiðstöðvar og söfn loka á miðnætti 23. mars vegna hertari reglna um samkomur. English below

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis að takmarka samkomur enn frekar og því verður Sundlaug Seltjarnarness, Bókasafn Seltjarnarness og Íþróttamiðstöð Seltjarnarness lokuð samkvæmt tilmælum.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, að takmarka samkomur enn frekar en áður vegna hraðari útbreiðslu Covid-19 í samfélaginu.  Viðburðir þar sem fólk kemur saman verða takmarkaðir við 20 manns í stað 100 áður.  Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.

Þessi fyrirmæli hafa áhrif á þjónustu sveitarfélaga:

  • Öllum sundlaugum, íþróttamiðstöðvum, söfnum og bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað frá miðnætti 23. mars. Ekki verða lagðar sektir á safnkost bókasafnsins á tímabilinu.
  • Skólar og leikskólar verða áfram opnir en þeir foreldrar eða forráðamenn sem af einhverjum ástæðum senda ekki börn sín í skólann þurfa að tilkynna það líkt og um skólaleyfi væri að ræða og taka um leið yfir ábyrgð á heimanámi barna sinna.
  • Önnur þjónusta sveitarfélaganna mun áfram haldast órofin eins og kostur er.

English:
Closing of swimming pools, sport centers and museums in Seltjarnarnes:
The Minister of Health has decided, in accordance with the Directorate of Health proposal, to limit gatherings even further than before due to the faster spread of Covid-19 in the community. Events where people come together will be limited to 20 people instead of 100 before. In addition, it must be ensured that more than 2 meters distance is kept between each and everyone. The decision will take effect on the midnight Monday night of March 23 and will be valid until April 12.

These instructions affect the services of municipalities
All swimming pools, sports centers, museums and libraries in the capital area will be closed from midnight on March 23. 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?