Sundlaug Seltjarnarness var opnuð aftur laugardaginn 12. maí eftir af hafa verið lokuð í 5 daga. Starfsfólk laugarinnar var önnum kafið þá viku við árlegar hreingerningar og viðhaldsverk.
Sundlaug Seltjarnarness var opnuð aftur laugardaginn 12. maí eftir af hafa verið lokuð í 5 daga. Starfsfólk laugarinnar var önnum kafið þá viku við árlegar hreingerningar og viðhaldsverk. .
Síðasti dagurinn var nýttur í að efla öryggi sundlaugargesta en þá var haldið skyndihjálparnámskeið fyrir alla starfsmenn sundlaugarinnar. Á námseiðinu var farið í allar þær aðstæður sem hugsanlega gætu komið upp hjá gestum sundlaugar og hvernig bregðast á við þegar slys ber að höndum, stórum sem smáum.
Námskeiðið var bæði bóklegt og verklegt. Á meðfylgjandi myndunum sjást áhugasamir starfsmenn í verklegu námi.