Það var sannkölluð sumarstemning á Eiðistorgi á laugardaginn var þegar í annað skiptið í vor var haldinn þar Flóamarkaður. Fjöldi sölubása var um allt torgið með fjölbreyttum varningi og þar mátti einnig hitta fyrir Kvenfélagið Seltjörn með kökubasar.
Það var sannkölluð sumarstemning á Eiðistorgi á laugardaginn var þegar í annað skiptið í vor var haldinn þar Flóamarkaður. Fjöldi sölubása var um allt torgið með fjölbreyttum varningi og þar mátti einnig hitta fyrir Kvenfélagið Seltjörn með kökubasar. Í góða veðrinu var Lúðrasveit tónlistarskólans mætt með Kára Húnfjörð í broddi fylkingar og kökur til sölu og stillti sveitin sér upp fyrir utan torgið og skemmti þar gestum og gangandi.
Markaðurinn hefur mælst vel fyrir og myndast mikil líf á torginu. Menn eru á leið í Hagkaup, Hugföng Vínbúðina eða aðra þjónustu og verslanir á torginu og stoppa í leiðinni og kaupa og eins og gerist og gengur á mörkuðum þá hittist fólk líka og spjallar. Markaðurinn er skemmtileg viðbót í flóruna í mannlífi Seltjarnarness.