Föstudaginn 16. mars var komið vor í Sundlaug Seltjarnarness
Föstudaginn 16. mars var komið vor í Sundlaug Seltjarnarness eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru margir sem nutu veðurblíðunnar í sundlaug bæjarins.
Einnig svífur vorið yfir Bakkatjörn en þessar myndir tók Steinunn Árnadóttir, garðyrkjustjóri bæjarins í síðustu viku en þær sýna hve vatnsmikil tjörnin er þessa dagana og að vetur konungur er ekki alveg tilbúinn að sleppa hendi af ríki sínu.