Hin árlega sumarferð eldri borgara á Seltjarnarnesi var farin í Veiðivötn 10. júlí sl. Sextíumanns voru í ferðinni en veðrið og flugurnar léku við hópinn allan daginn.
Hin árlega sumarferð eldri borgara á Seltjarnarnesi var farin í Veiðivötn 10. júlí sl. Sextíumanns voru í ferðinni en veðrið og flugurnar léku við hópinn allan daginn. Keyrt var um Veiðivatnasvæðið og farið upp á Hábungu og dáðst að útsýninu enda skartaði fjallahringurinn sínu fegursta. Ekið var að Leirubakka þar sem Heklusetrið var skoðað og snæddur kvöldverður.