Fara í efni

Stofnanir, söfn og menningarhús sveitarfélaga - leiðbeiningar um tilslakanir frá samkomubanni og sóttvarnaráðstöfunum vegna Covid-19 frá 4. maí

Embætti landslæknis og Almannavarnir hafa gefið út leiðbeiningar er varða stofnanir, söfn og menningarhús sveitarfélaga í tengslum við tilslakanir á samkomubanni sem tekur gildi þann 4. maí 2020. Sjá nánar:
Embætti landslæknis og Almannavarnir hafa gefið út leiðbeiningar er varða stofnanir, söfn og menningarhús sveitarfélaga í tengslum við tilslakanir á samkomubanni sem tekur gildi þann 4. maí 2020. 

Þar kemur fram að í  takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar til 1. júní 2020. Með fjöldasamkomum er átt við þegar fleiri en 50 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Þó mega ekki vera fleiri en svo í rými að 2 metrar geti verið á milli óskyldra aðila. Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 50 einstaklingar inni í sama rými, kaffihúsum, og mötuneytum.

Neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 er enni í gildi og því mikilvægt er að hafa í huga almennar sóttvarnarráðstafnir er enn í gildi. 

Starfsfólk er hvatt til að sinna þrifum vel á sínum starfsstöðvum. Við hvetjum alla að fylgjast vel með leiðbeiningum sem koma frá landlækni og heilbrigðisfólki varðandi sóttvarnir, almenna umgengni og þrif þ.e.: 
  • Gæta vel að hreinlæti, þvo hendur reglulega með sápu og nota handspritt. 
  • Ef notaðir eru hanskar þarf að skipta oft um þá og hreinsa hendur fyrir og eftir hanskanotkun. 
  • Forðast snertingu við augu, nef og munn. 
  • Hugið vel að yfirborðsflötum t.d. hurðahúnum, handriðum, lyftuhnöppum, snertiskjám, lyklaborðum, tölvumúsum, greiðsluposum og ljósarofum. 
  • Ákjósanlegt er að einn starfsmaður noti eina starfsstöð heila vakt og hreinsi helstu snertifleti áður en annar tekur við starfsstöðinni. 
  • Minna gesti bókasafna á handhreinsun og tveggja metra regluna með skiltum og merkingum við afgreiðsluborð og sjálfsafgreiðslustöðvar. 
Mikilvægt er að aðgengi að handspritti fyrir starfsmenn og gesti sé gott. 

Sjá nánar í tilkynningu:



Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?