Fara í efni

Sterk fjárhagsstaða Seltjarnarnesbæjar

Niðurstaða samstæðuársreiknings Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2013 er mjög góð og mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 354 m.kr. samanborið við áætlun 18 m.kr.  
Seltjarnarnes - merkiNiðurstaða samstæðuársreiknings Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2013 er mjög góð og mun betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 354 m.kr. samanborið við áætlun 18 m.kr.   Þessi góða afkoma helgast meðal annars af því að framlög frá Jöfnunarsjóði reyndust meiri en reiknað var með í fjárhagsáætlun og innheimta eldri útsvarkrafna á árinu fór langt fram úr því sem gert hafði verið ráð fyrir.

Skuldahlutfall með því lægsta á landinu
Heildar skuldir og skuldbindingar nema um 1.699 m.kr. og hafa lækkað um 118 m.kr. á milli ára. Skuldahlutfall er 55% sem er með því allra lægsta á landinu. Þessi góða rekstrarniðurstaða og sterk fjárhagsstaða bæjarfélagsins sýna enn og aftur þann stöðugleika sem ríkt hefur í stjórn bæjarins á liðnum árum. 

Árangur má þakka starfsmönnum og miklum aga
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri er afar ánægð með þessa jákvæðu niðurstöðu. „Ég er sérlega ánægð með að geta lagt fram ársreikning 2013 sem sýnir að  öll helstu markmið um rekstur bæjarfélagins hafa gengið eftir.  Þessum góða árangri er fyrst og fremst samhentu átaki starfsmanna bæjarins að þakka, vönduðum kostnaðaráætlunum og miklum aga í rekstri.

Fjölgun íbúa á milli ára
Álögum á íbúa hefur verið haldið í lágmarki og gjaldskrár bæjarins hafa lækkað að raungildi síðustu ár. 

Í lykiltölum kemur fram að skatttekjur nema 546 þús. kr. á íbúa og skuldir á íbúa í árslok 2013 námu 167 þús. kr.  Til samanburðar námu meðalskuldir á íbúa höfuðborgarsvæðisins 1.945 þús kr. í árslok 2012 eða u.þ.b. tólf sinnum meira en á íbúa á Seltjarnarnesi.
Íbúum Seltjarnarness hefur fjölgað um 1,1% milli áranna 2012 og 2013 og voru íbúar 4.376 þann 1. desember 2013.

Ársreikningurinn verður lagður fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar á morgun, þriðjudaginn 16. apríl.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?