Fara í efni

Steinunn garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar kvödd

Eftir tæplega 30 ára starf sem garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar kvaddi Steinunn Árnadóttir okkur Seltirninga á þeim vettvangi er hún lauk störfum þann 30. nóvember sl.
Eftir tæplega 30 ára starf sem garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar kvaddi Steinunn Árnadóttir okkur Seltirninga á þeim vettvangi er hún lauk störfum þann 30. nóvember sl.

Þegar Steinunn hóf störf hjá Seltjarnarnesbæ árið 1992 hafði lítil stefnumörkun verið sett fram í garðyrkjumálum Seltjarnarness en á því varð breyting með komu Steinunnar. Strax það ár var hafist handa við að móta og tyrfa svæðið í Bakkavör og ganga frá svæðunum við Valhúsabraut, Kirkjubraut, Norðurströnd, Suðurströnd og mikið lagt upp úr vönduðum undirbúningi áður en hafist var handa við að gróðursetja. Þess var gætt í upphafi að velja salt- og vindþolnar plöntur enda ekki hægt að rækta hvað sem er á Seltjarnarnesi. Með sanni má segja að ræktuð svæði hafa stækkað umtalsvert á Seltjarnarnesi síðastliðna áratugi undir hennar stjórn.

Þá var það eitt af fyrstu verkum Steinunnar að endurhlaða sjóvarnarvegginn neðanvert við Eiðistorg en Steinunn er mikill áhugamaður um grjóthleðslu og hafði starfað töluvert við slíkt áður en hún réði sig til starfa á Seltjarnarnesinu. Hitabeltisgróðurinn á Eiðistorgi hefur alla tíð verið einstakur og bæði verið mikil áskorun og metnaður af hennar hálfu að láta hann dafna eins og hugsunin á bak við hönnun torgsins gerði ráð fyrir.

Í gegnum árin hefur Steinunn átt sinn þátt í að auka áhuga Seltirninga á garðyrkju bæði með því að fara heim til fólks og veita ráðgjöf um hvað þrífist best í görðunum auk þess sem flest ungmenni á Seltjarnarnesi hafa tekið sín fyrstu skref í vinnu undir hennar stjórn í Vinnuskólanum. Að sögn Steinunnar hefur vinnan með ungmennunum verið eitt hennar skemmtilegasta verkefni hér hjá bænum og jafnvel ástæða þess að hún hefur varið nær allri sinni starfsævi í garðyrkjumálunum á Seltjarnarnesi.

Það var vel við hæfi að leysa sjálfan garðyrkjustjóra Seltjarnarnesbæjar út með blómum þegar að hún var kvödd á sínum síðasta starfsdegi og hélt í framhaldi á vit nýrra ævintýra í sínu lífi.

Steinunn garðyrkjustjóri Seltjarnarnesbæjar kvödd

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?