Fara í efni

Starfsemi nýja ungbarnaleikskólans í Gamla Mýrarhúsaskóla gengur vel

Leikskólinn opnaði þann 1. október sl. fyrir börn á öðru aldursári til tveggja ára. Aðlögun fyrstu barnanna hefur gengið afar vel og þau njóta sín bæði innan- sem utandyra enda öll aðstaða sniðin að þeirra þörfum.
Þann 1. október sl. opnaði nýr ungbarnaleikskóli í Gamla Mýrarhúsaskóla fyrir börn á öðru aldursári til tveggja ára og heitir deildin Kríuból. Um er að ræða sjálfstæða fag- og rekstrareiningu á vegum Seltjarnarnesbæjar. Leikskólastjóri er Harpa Frímannsdóttir, grunnskólakennari og eru starfsmenn leikskólans fimm talsins.

Leikskólastarfið hefur farið afar vel af stað þennan fyrsta mánuð. Átta börn eru í skólanum og gekk aðlögun þeirra virkilega vel. Á næstunni verða svo fleiri börn tekin inn. Lögð er áhersla á að börnin læri í gegnum leik, sköpun, útiveru og málrækt.

Endurbætur voru gerðar á húsnæði og lóð skólans áður en að hann opnaði. Útisvæðið er orðið mjög fallegt og hentar einkar vel aldurshópnum. Öryggisins vegna voru gúmmímottur lagðar sem undirlag útisvæðisins og settar voru upp rólur, rennibraut, sandkassi og bíll. Innandyra eru húsgögn frá Krumma en öll borð, stólar og annar búnaður eru í réttri hæð fyrir börnin.

Leikskólinn hefur auk þess yfir að ráða kerrum svo hægt er að fara með börnin í leiðangur um nærumhverfið sem og í íþróttahúsið þar sem börnin eiga tíma í fimleikasalnum einu sinni í viku.

Fyrstu leikskólabörnin spjara sig greinilega vel og upplifa nýjan heim í samvistum við jafnaldra eins og sjá má á myndunum.

UngbarnaleikskóliUngbarnaleikskóli Ungbarnaleikskóli
UngbarnaleikskóliUngbarnaleikskóli
Ungbarnaleikskóli
Ungbarnaleikskóli
UngbarnaleikskóliUngbarnaleikskóli

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?