Fara í efni

Soffía Guðmundsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness

Samþykkt var á 707. (1633.) fundi bæjarstjórnar Seltjarnarness í desember 2009 að leikskólarnir Mánabrekka og Sólbrekka skyldu sameinaðir. Nú hefur Soffía Guðmundsdóttir verið ráðin leikskólastjóri nýs sameinaðs Leikskóla Seltjarnarness sem tekur til starfa 1. júlí nk.

Samráðsnefnd um stefnumótun hins nýja leikskóla verður skipuð á næstunni. Nefndin skipa Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri auk fulltrúa skólaskrifstofu, skólanefndar, fulltrúa foreldra og starfsfólks leikskólans.

Sameiningarferlið hefur gengið vel en að mörgu ber að huga við sameiningu þessara tveggja vinsælu leikskóla. Soffía mun leiða þá faglegu vinnu sem framundan er við útfærslu á sameiningunni í samstarfi við aðstoðarleikskólastjóra og starfsfólk. Staða aðstoðarleikskólastjóra hefur þegar verið auglýst laus til umsóknar.

Hrafnhildur Sigurðardóttir, Soffía Guðmundsdóttir og Óskar J. Sandholt

Á myndinni talið frá vinstri: Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólastjóri, Soffía Guðmundsdóttir leikskólastjóri og Óskar J. Sandholt framkvæmdastjóri fræðslu-, menningar- og þróunarsviðs

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?