Slysavarnarkonur hafa í mörg ár fært grunnskólanum góðar gjafir sem stuðla að auknu öryggi barna. Í dag færðu þær Mýrarhúsaskóla 60 endurskinsvesti fyrir yngstu börnin.
Slysavarnarkonur hafa í mörg ár fært grunnskólanum góðar gjafir sem stuðla að auknu öryggi barna. Í dag færðu þær Mýrarhúsaskóla 60 endurskinsvesti fyrir yngstu börnin.
Það eykur öryggi barnanna mikið í ferðum á vegum skólans. Þau sjást vel í skammdeginu en einnig er auðveldara fyrir starfsfólk skólans að hafa yfirsýn yfir hópinn þegar allir eru komnir í gulu vestin.
Slysavarnarkonum er þakkað kærlega fyrir höfðinglega gjöf.
Myndir sem teknar voru við þetta tækifæri