Skrifstofa tækni- og umhverfissviðs er flutt frá Bygggörðum að Austurströnd 2 eða í sama hús og bæjarskrifstofur Seltjarnarness
Skrifstofa tækni- og umhverfissviðs er flutt frá Bygggörðum að Austurströnd 2 eða í sama hús og bæjarskrifstofur Seltjarnarness. Framkvæmdastjóri sviðsins, garðyrkjustjóri, byggingarfulltrúi og verkfræðingur bæjarins munu því hafa aðstöðu á bæjarskrifstofunum.
Ný framkvæmda- og þjónustumiðstöð Seltjarnarnesbæjar mun taka við hlutverki áhaldahússins sem staðsett hefur verið í Bygggörðunum og standa flutningar yfir um þessar mundir en miðstöðin verður staðsett að Austurströnd 1. Véla- og tækjageymsla mun hins vegar áfram vera í Bygggörðum 3.