Setning Menningar- og listahátíðar fór fram laugardaginn 1. október í Seltjarnarneskirkju.
Katrín Pálsdóttir formaður menningarnefndar Seltjarnarness setti hátíðina.
Setning Menningar- og listahátíðar fór fram laugardaginn 1. október í Seltjarnarneskirkju.
Katrín Pálsdóttir formaður menningarnefndar Seltjarnarness setti hátíðina. Hún benti m.a. á mikilvægi skapandi greina og dró athyglina að þeim auði sem býr í unga fólkinu og að ungt fólk kemur veglega að hátíðinni.
Frumflutt var verkið Trompetissimo eftir Kára Húnfjörð Einarsson. Verkið tileinkaði hann í gær Kára Snæ.
Kári kynnti verkið sem er í þremur köflum og skrifað fyrir trompet og píanó. Það voru Ari Bragi Kárason trompetleikari, sonur Kára og Dagný Björgvinsdóttir píanóleikari og kennari við Tónlistarskóla Seltjarnarness sem fluttu verkið. Þetta var glæsilegur flutningur og Kára, Ara og Dagnýju fagnað vel í lokin.
Í framhaldi af opnuninni voru opnaðar þrjár sýningar í Bókasafni Seltjarnarness.
George Douglas sýnir olíumálverk og kallar sýninguna Írskan pilsaþyt. Georg er írskur en hefur búið og starfað á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem við sjáum myndir hans á safninu hjá okkur, en síðast sýndi hann landslagsverk.
Guðný Hrönn Antonsdóttir sem útskrifaðist úr Listaháskólanum í síðastliðið vor sýnir þrjú myndverk í Tímaritadeild safnsins.
Síðast en ekki síst þá opnaði sýningin Stólafjör þar sem nemendur úr Valhúsaskóla sýna stóla sem þau unnu úr skítugum og illa förnum stólum úr mötuneyt skólans. Það voru Móeiður myndmenntakennari og Ásta textílkennari sem stýrðu verkefninu.
Verkefnið hófst á umræðum um endurnýtingu og voru nemendum sýnd bæði listaverk og nytjahluti. Nemendurnir unnu saman í hópum, hugmyndum var kastað á víxl og komist að samkomulagi. Þegar þemað var fundið var farið í gegnum framkvæmdaferli og árangurinn sést vel á sýningunni. Stólinn með hjartanu heitir Ást og er það einn hönnuðanna Borghildur sem stendur við stólinn. Allir eru stólarnir líflegir og skemmtilegir og mikið fjör í þeim.
Margir lögðu leið sína á opnunina í kirkjunni og á bókasafnið og má hér meðal annara sjá Katrínu Pálsdóttur, formann menningarnefndar, Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarstjóra og Hildi Kristmundsdóttur útibússtjóra Íslandsbanka á Eiðistorgi en bankinn styður vð hátíðina.