Fara í efni

Sendinefnd frá Búlgaríu skoðar starfsemi Hitaveitu Seltjarnarness

20 manns frá 8 sveitarfélögum í Búlgaríu kynnti sér starfsemi Hitaveitu Seltjarnarness í tengslum við áætlun uppbyggingarsjóðs EES um endurnýjanlega orku.

20 manna sendinefnd frá 8 sveitarfélögum í Búlgaríu sótti Seltjarnarnesið heim í gær til að kynna sér starfsemi hitaveitu Seltjarnarness. Heimsóknin var í tengslum við áætlun uppbyggingarsjóðs EES um endurnýjanlega orku. Starfsmenn hitaveitunnar tóku á móti vel á móti gestunum, leiddu þá í gegnum sögu okkar einstöku hitaveitu, starfsemina og framtíðarsýnina.

Eftir stutta yfirferð og kynningu í bæjarstjórnarsalnum var farið með hópinn að skoða borholu 12 og þaðan að listaverkinu Bollasteinn eftir Ólöfu Nordal. Að sjálfsögðu var svo boðið upp á heimaverkaðan kæstan hákarl við Hákarlahjallinn en hann fór víst mis vel ofan í búlgörsku gestina!




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?