Fara í efni

Seltjarnarnesbær best rekinn

Grant Thornton endurskoðun ehf hefur skilað af sér greinargerð um fjárhagsstöðu Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2005. Sem fyrr þykir fjármálastjórn og fjárhagsstaða bæjarins með því besta sem gerist meðal sveitarfélaga á landinu. Peningaleg staða er sterk og með því besta sem gerist á meðal sveitarfélaga.

Jónmundur GuðmarssonGrant Thornton endurskoðun ehf hefur skilað af sér greinargerð um fjárhagsstöðu Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2005. Sem fyrr þykir fjármálastjórn og fjárhagsstaða bæjarins með því besta sem gerist meðal sveitarfélaga á landinu. Peningaleg staða er sterk og með því besta sem gerist á meðal sveitarfélaga.

Í árslok 2005 var staða A-hluta bæjarsjóðs jákvæð upp á 122 þúsund krónur á íbúa og styrkist um tæp 40% á milli ára. Skuldastaða bæjarins er einnig lægri en þekkist meðal sambærilegra sveitarfélaga en nettóskuld samstæðureiknings á íbúa lækkar enn.

Seltjarnarnes gæti þannig greitt upp nettóskuld sína á fjórum mánuðum á meðan samanburðarsveitarfélög væru á bilinu 3 til 10 ár að greiða sínar nettóskuldir. Veltufjárhlutfall bæjarins styrkist enn á milli ára og hækkar úr 1,45 í árslok 2004 í 2,1 í árslok 2005. Hlutfallið er því vel yfir æskilegu lágmarki sem almennt er álitið um 1,0.




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?