Framkvæmdir við ljósleiðaraverkefni ganga að mestu samkvæmt áætlun. Fyrir nokkru gerði Gallup viðhorfskönnun meðal Seltirninga en niðurstöður hennar verða nýttar við gerð endanlegrar verkáætlunar. Inngangstexti
Framkvæmdir við ljósleiðaraverkefni ganga að mestu samkvæmt áætlun. Fyrir nokkru gerði Gallup viðhorfskönnun meðal Seltirninga en niðurstöður hennar verða nýttar við gerð endanlegrar verkáætlunar. Svörin voru greind eftir hverfum en þar var meðal annars spurt út í áhuga íbúa á tengingu ásamt fleiru sem tengist nýtingu ljósleiðarakerfisins.
Miðað við niðurstöður könnunarinnar er mikill almennur áhugi meðal Seltirninga á að tengjast ljósleiðaranetinu. Yfir 86% þeirra sem afstöðu tóku sögðust hafa mikinn eða mjög mikinn áhuga á tengingu en einungis 5% lítinn eða engan áhuga. Einnig sögðust meira en 90% gera ráð fyrir að nýta tenginguna þegar hún byðist og um 75% vilja fá aðgang innan tveggja ára.