Fara í efni

Seltirningar leggja aukna áherslu á umferðaröryggi

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu hafa undirritað samning um samstarf við gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið.

Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu hafa undirritað samning um samstarf við gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Þetta er annar samningur þess efnis sem gerður er á vegum Umferðarstofu og sveitarfélags.

Með samninginum skuldbindur Seltjarnarnesbær sig til þess að gera umferðaröryggisáætlun sem miðar að auknu umferðaröryggi í bæjarfélaginu og mun í því sambandi virkja sem flesta hagsmunaaðila til þátttöku.
Stefnt er að fækkun óhappa og slysa í umferðinni og verða í áætluninni sett fram markmið til lengri og skemmri tíma og leiðir til þess að mæla árangurinn skilgreindar.


Umferðastofa mun annast fræðslu meðal starfsfólks Seltjarnarness og aðstoða við gerð áætlunarinnar. Safnað verður saman upplýsingum um slysa- og tjónatíðni á ákveðnu tímabili einu sinni á ári og sérstök áhersla verður lögð á aðgerðir í þágu óvarinna vegfarenda s.s. gangandi fólks og hjólreiðamanna. Umhverfi skóla, leikskóla, félagsmiðstöðva og íþróttamannvirkja verði einnig metið sérstaklega með tilliti til umferðaröryggis.


Verkefninu verður fylgt eftir með árlegri skýrslu um framgang umferðaröryggisáætlunarinnar þar sem aðgerðir ársins eru tilgreindar og gefnar upplýsingar um mælanlegan árangur.



Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?