Í byrjun febrúar undirrituðu Sigrún Hvandal yfirfélagsráðgjafi Félagsþjónustu Seltjarnarness og Jón Sigfússon framkvæmdastjóri Rannsóknar og greiningar áframhaldandi samstarfssamning til fjögurra ára.
Í byrjun febrúar undirrituðu Sigrún Hvandal yfirfélagsráðgjafi Félagsþjónustu Seltjarnarness og Jón Sigfússon framkvæmdastjóri Rannsóknar og greiningar áframhaldandi samstarfssamning til fjögurra ára. Samningurinn felur í sér að Rannsókn og greining leggi áfram kannanir fyrir efstu bekki grunnskólans, greini gögnin og legi fram til kynningar að því loknu. Könnunin snýr að högum, líðan og neyslu nemendanna og hefur verið gerð um árabil. Um þessar mundir eru 12.000 ungmenni í 8., 9. og 10. bekk á landinu öllu að svara könnuninni en að jafnaði hefur svörun á landsvísu verið um 90%. Gera má ráð fyrir að niðurstöður könnunarinnar liggi fyrir í síðari hluta aprílmánaðar.