Fara í efni

Samið um byggingu hjúkrunarheimilis á Lýsislóð

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórinn í Seltjarnarneskaupstað undirrituðu í dag samkomulag um að byggja sameiginlega hjúkrunarheimili á svokallaðri Lýsislóð, en lóðin markast af Eiðsgranda og Grandavegi.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórinn í Seltjarnarneskaupstað undirrituðu í dag samkomulag um að byggja sameiginlega hjúkrunarheimili á svokallaðri Lýsislóð, en lóðin markast af Eiðsgranda og Grandavegi.

Jónmundur Guðmarsson, Sif Friðleifsdóttir og Steinunn Valdís ÓskarsdóttirHeilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið greiðir 70% kostnaðar við að reisa hjúkrunarheimilið, Reykjavíkurborg greiðir 20% og Seltjarnaneskaupstaður greiðir 10% kostnaðarins. Hjúkrunarheimilið verður í eigu aðilanna þriggja í sömu hlutföllum. Það er Seltjarnaneskaupstaður sem leggur til lóðina í þessu skyni samkvæmt drögum að deiliskipulagi sem fyrir liggur.

Hugmyndin að byggingu hjúkrunarheimils á Lýsislóðinni komst á dagskrá í árslok 2003, þegar Seltjarnanesbær óskaði formlega eftir samstarfi við Reykjavíkurborg um uppbygginguna. Frá þeim tíma hafa sveitarfélögin átt í nánu samstarfi við Íslenska aðalverktaka, sem eru lóðarhafi á reitnum, og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið um skipulag og aðra tilhögun uppbyggingarinnar. Reykjavíkurborg hefur keypt nærliggjandi eign til að liðka fyrir uppbyggingaráformunum og Seltjarnarnesbær hefur gengið frá samningi við ÍAV um lóð undir hjúkrunarheimilið.

Jónmundur Guðmarsson, Sif Friðleifsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir

Samkvæmt vinnuáætlun heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um framkvæmdir á árunum 2006 til 2012 er miðað við að byrjað verði að byggja heimilið í byrjun árs 2008 og taki eigi lengri tíma en 18-24 mánuði þannig að það megi taka í notkun eigi síðar en um áramót 2009/2010.

Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við hjúkrunarheimilið verði 12 til 1400 milljónir króna og er þá miðað við meðalsstofnkostnað hjúkrunarrýmis, og að rýmin verði allt að 90 talsins. Meðaltalskostnaður við rekstur hvers hjúkrunarrýmis er um 5,5 milljónir krónur á ári.

Áður en til framkvæmda kemur skal gera framkvæmda- og kostnaðaráætlun og samning milli ráðuneytisins og sveitarfélaganna um uppbyggingu og fjármögnun verksins og nánari tilhögun framkvæmda.

Hér á hjúkrunarheimili að rísaStjórnun verkefnisins skal vera í höndum starfsmanna heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, Reykjavíkurborgar og Seltjarnarneskaupstaðar samkvæmt ákvörðun aðila. Umsjón með verklegum framkvæmdum verður falin Framkvæmdasýslu ríkisins.

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið mun auglýsa eftir rekstraraðila fyrir hjúkrunarheimilið þegar gengið hefur verið frá samningi milli ráðuneytisins og sveitarfélaganna um fjármögnun verksins og nánari tilhögun þess.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?