Foreldrar/forráðamenn
Eins og mörg ykkar vita hefur Mýrarhúsaskóli s.l. 6 ár með ýmsu móti styrkt Namaziziskólann sem er grunnskóli með u.þ.b. 1000 nemendur í suðurhluta Malaví.
Nú berast þær fréttir að hungursneyð ríki í Malaví og hefur það svæði sem skólinn okkar er á orðið illa úti.
Starfsfólk Mýrarhúsaskóla hefur ákveðið að aðstoða vini okkar í Malaví í þessum þrengingum með því að safna peningum sem nýttir yrðu til hagsbóta fyrir nemendur á þessu svæði. Starfsfólk skólans hefur þegar ákveðið að andvirði jólagjafa sem gefnar hafa verið á jólagleði skólans renni að þessu sinni til söfnunarinnar.
Grundaskóli á Akranesi og Lágafellsskóli í Mosfellsbæ eiga vinaskóla á sama svæði og ætlar starfsfólk þessarra skóla að efna til samskonar söfununar.
Skólarnir ætla síðan að leggja söfnunarpeningana í sameiginlegan sjóð sem sendur yrði starfsfólki Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví og það beðið um að ráðstafa þeim í þágu nemenda þessarra skóla.
Á næstu dögum munu nemendur koma heim með jólamyndir sem þau hafa annað hvort teiknað á blað eða unnið í tölvu og bjóða ykkar að kaupa þessar myndir á 100-500 krónur. Afar, ömmur, frændur og frænkur geta auðvitað líka fengið að kaupa myndir sé þess óskað.
Við vonum að þið takið vel þessarri viðleitni nemenda og starfsfóks Mýrarhúsaskóla til þess að hjálpa vinum okkar í Malaví sem nú sjá fram á matarskort.
Með jólakveðju
Nemendur og starfsfólk Mýrarhúsaskóla
Aðrir sem vilja leggja okkur lið í söfuninni eru beðnir um að leggja inn á reikning í SPRON á Seltjarnarnesi:
1151-26-43
kennitala 6710-88-3529
Smelltu hér til að sjá fleiri myndir frá Malaví.
Þær eru teknar af starfsmanni Þróunarsamvinnustofunar Íslands í maí 2005