Á skipulagsdegi skólanna á Seltjarnarnesi þann 6. október var haldinn sameiginlegur fræðslufundur, fyrir starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, skólaskjóli, tónlistarskóla og Selinu.
Á skipulagsdegi skólanna á Seltjarnarnesi þann 6. október var haldinn sameiginlegur fræðslufundur, fyrir starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, skólaskjóli, tónlistarskóla og Selinu.
Erindi flutti Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur og nefndist erindi hans "Að breyta um stefnu". Var gerður góður rómur að erindi hans. Að erindinu loknu var boðið upp á glæsilegt morgunverðarhlaðborð að hætti kokksins í Mýrarhúsaskóla.
Þetta er annað árið í röð sem þessi háttur er hafður á og þykir hafa tekist einstaklega vel til.