Í hálkunni er gott að muna eftir gulu saltkistunum með skóflum ofan í sem eru víðsvegar á Seltjarnarnesi. Íbúum er frjálst að sækja sér salt til að dreifa í sínu nærumhverfi eða þar sem að viðkomandi þarf á að halda. Við Þjónustumiðstöðina er einnig hægt að ná sér í sand.
Gulu kisturnar eru mjög áberandi og hægt að finna þær á eftirtöldum stöðum:
- Við Þjónustumiðstöðina á Austurströnd 1
- Við hringtorgið hjá heilsugæslunni
- Við gangbrautina á Kirkjubrautinni
- Á horninu á Nesvegi og Suðurströnd til móts við kaffihúsið
- Í brekkunni við Hrólfskálavör
- Efst á Vesturströnd
- Neðst á Vesturströnd
- Neðst á Víkurströnd
- Við bílaplan leikskólans
- Við beygjuna efst á Skerjabraut
- Við torgið í Tjarnarmýri
Starfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar vinnur baki brotnu við að hálkuverja gangstéttir og götur á Nesinu og hvetur íbúa eindregið til þess að aðstoða með því að dreifa salti á viðeigandi staði þegar vart verður við erfiða hálku og þakkar fyrirfram fyrir þá hjálp.