Fara í efni

Rýmri samkomutakmarkanir tóku gildi í dag 7. september

Heilbrigðisráðherra hefur gefið út nýja reglugerð vegna Covid-19 sem felur m.a. í sér að fjöldatakmörkun miðast nú við 200 manns og nálægðarreglu hefur verið breytt úr 2 metrum í 1 metra.

Nú hefur heilbrigðisráðherra birt nýja reglugerð, sem tekur við af núgildandi auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Reglugerðin tekur gildi í dag  7. september og gildir í 3 vikur eða til og með 27. september. 

Nálægðarreglu hefur verið breytt úr 2 metrum í 1 metra og hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman fer úr 100 manns í 200 þegar nýjar reglur um takmarkanir á samkomum taka gildi á mánudaginn, 7. september. Þetta er meginefni nýrrar reglugerðar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Breytingarnar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Aðrar breytingar á samkomutakmörkunum sem verða með reglugerðinni eru þessar:

  • Hámarksfjöldi á sund- og baðstöðum og líkamsræktarstöðvum fer úr helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi í 75%.

  • Íþróttir, sviðslistir og önnur menningarstarfsemi getur farið fram þrátt fyrir 1 metra reglu, þ.e. snertingar eru þar heimilar. Um áhorfendur fer eftir almennum reglum um 1 metra og 200 manns í rými.

Opnunartími vínveitingastaða verður áfram takmarkaður við til kl. 23.00.

Reglugerð heilbrigðisráðherra hefur verið send  Stjórnartíðindum til birtingar og tekur sem fyrr segir gildi mánudaginn 7. september.

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?