Fara í efni

Rekstur Bílastæðasjóðs Seltjarnarnesbæjar kominn í gang

Verkefni sjóðsins er að sjá til þess að allir íbúar Seltjarnarnesbæjar komist leiðar sinnar á sem öruggastan og besta máta, sama hver ferðamátinn er hverju sinni og án truflunar frá ökutækjum sem lagt er ólöglega.

Verkefni sjóðsins er að sjá til þess að allir íbúar Seltjarnarnesbæjar komist leiðar sinnar á sem öruggastan og besta máta, sama hver ferðamátinn er hverju sinni og án truflunar frá ökutækjum sem lagt er ólöglega. Stöðuverðir sjá um eftirlit og að leggja á stöðubrotsgjöld. Sjá nánar:


Hlutverk Bílastæðasjóðs er að auka þjónustu við íbúa til að komast leiðar sinnar á sem öruggastan og besta máta, sama hver ferðamátinn er hverju sinni.

Eingöngu er hægt að koma með athugasemdir vegna álagningar hér að neðan.

Andmæli hnappur


Bílastæðasjóður er í eigu Seltjarnarnesbæjar. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar fer með stjórn bílastæðasjóðs en sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs er yfirmaður bílastæðasjóðs og sér um daglegan rekstur hans, þ.m.t. að annast framkvæmd stefnu og verkefna sjóðsins sem og samskipti við stjórnsýslu og stofnanir bæjarins. Stöðuverðir sjá um eftirlit og leggja á stöðubrotsgjöld.

Verkefni Bílastæðasjóðs er að sjá til þess að allir íbúar Seltjarnarnesbæjar komist örugglega ferðar sinnar innan Seltjarnarness, hvernig ferðamáta sem þeir kjósa sér, án þess að verða fyrir truflun frá ökutækjum sem er ekki lagt í samræmi við umferðarlög.

Samþykkt um bílastæðasjóð Seltjarnarnesbæjar




Stöðubrotsgjald
Stöðubrotsgjald er lagt á bifreið þegar stöðvað eða lagt er undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánar tilteknar aðstæður sbr. 108. grein umferðarregla nr. 77/2019.

Stöðubrotsgjald - bílastæði hreyfihamlaðra
Gjaldið fyrir að leggja í bílastæði hreyfihamlaðra án þess að gildu stæðiskorti fyrir hreyfihamlaða sé framvísað

Rökstuðningur
Aðili máls getur óskað eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun álagningar. Beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun skal bera fram innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutæki og verður henni svarað innan 14 daga frá því að hún barst.

Andmæli
Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar. Andmæli skulu lögð fram á vefsíðu bílastæðasjóðs.




Fyrir hvað ber að greiða stöðubrotsgjald

11 Bannað að stöðva (bannmerki 24)

12 Bannað að leggja (bannmerki 21)

13 Bannað að leggja á svæði.

21 Stöðvað/lagt á gangbraut eða innan 5 metra frá henni.

22 Stöðvað/lagt á vegamótum eða innan 5 metra frá næstu brún akbrautar á þvervegi.

23 Stöðvað/lagt á/við biðstöð hópbifreiða innan 15 metra frá merki.

24 Stöðvað/lagt á gangstétt, göngustíg, umferðareyju eða aðra svipaða staði.

25 Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir leigubifreið, vörubifreið eða hópbifreið.

26 Stöðvað/lagt á móti akstursstefnu.

27 Stöðvað/lagt í merktu stæði ætluðu fólksbifreiðum.

28 Stöðvað/lagt í merkt stæði ætluðu lögreglu eða sjúkrabifreið.

29 Lagt við vatnshana slökkviliðs.

30 Lagt í vistgötu.

31 Brot sbr. d- og e- lið 1. mgr. 109. gr.

32 Brot á reglum um notkun stöðureita (aukastöðugjald).

33 Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir ökutæki fatlaðs fólks.




Lög og reglugerðir

Umferðarlög, nr. 77/2019

Reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra, nr. 289/1995

Reglugerð um útgáfu og notkun stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða, nr. 1130/2016

Stjórnsýslulög, nr. 37/1993

Lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991

Auglýsing um gjaldskrá vegna stöðubrota í Seltjarnarnesbæ

Reglugerðir með breytingum er að finna á vef Samgöngustofu.




Að færa álagningu milli aðila
Álagning stöðvunarbrotagjalds miðast við skráðan eiganda/umráðamann skv. ökutækjaskrá og er Bílastæðasjóði óheimilt að færa kröfu á milli aðila. Aðrir en skráðir eigendur/umráðamenn geta greitt álagningu í bönkum, sparisjóðum og heimabanka.

Álagningu er hægt að greiða í gegnum heimabanka undir ógreiddum reikningum.




Greiðsluleiðbeiningar
Þegar gjald er lagt á ökutæki er það stofnað næsta virka dag inn í bankakerfið og stofnast þar á viðkomandi eiganda/umráðamann og er þá tilbúið til greiðslu.

Hægt er að greiða stöðvunarbrotagjöld í öllum bönkum og sparisjóðum hér á landi. Jafnframt er hægt að greiða gjöldin í netbanka og er þá gjaldið undir liðnum "ógreiddar kröfur" í netbanka eiganda/umráðamanns. Sé annar en eigandi eða umráðamaður að greiða gjaldið þarf viðkomandi að slá kröfunúmer seðilsins inn, en það er gert með því að velja "Greiðslur" og síðan "Greiðsluseðill". Vinsamlegast athugið að það er ekki hægt að millifæra inn á reikning Bílastæðasjóðs heldur þarf að greiða greiðsluseðilinn.

Að gefnu tilefni er bent á að "Kennitala greiðanda" í netbönkum vísar til kennitölu þess sem er skráður fyrir gjaldinu, í þessu tilviki er það eigandi eða umráðamaður ökutækis, en ekki þess sem er að greiða gjaldið.




Innheimtuferli
Verði álagt gjald ekki greitt innan 14 daga frá álagningu hækkar það um 50% og gjald enn ógreitt að liðnum 28 dögum frá álagningu hækkar það um 100% miðað við upphaflega fjárhæð sbr. gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Seltjarnarnesbæ. Sé álagning ógreidd að þessum 28 dögum liðnum fer hún til innheimtu.

Athygli er vakin á því að álögðu stöðvunarbrotagjaldi fylgir lögveð í ökutæki og heimilt er að krefjast nauðungarsölu án undangengis fjárnáms sbr. 2. - 5. mgr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.




Gjaldskrá
Gjaldskrá Bílastæðasjóð gildir frá 21. júlí 2020.

Brot Upphæð
Stöðubrotsgjald - stöðvað undir bannmerki,
stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða
við aðrar nánari tilteknar aðstæður
sbr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019
10.000 krónur
 - 14 dögum eftir álagningu 15.000 krónur
 - 28 dögum eftir álagningu 20.000 krónur
Lagt í bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða  20.000 krónur
 - 14 dögum eftir álagningu 30.000 krónur
 - 28 dögum eftir álagningu 40.000 krónur
Uppfært 28. janúar 2021.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?