Fara í efni

Ráðgjafa- og hönnunarsamningur undirritaður

Í gær, þriðjudaginn 1. júlí, undirrituðu Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarness og Þorvarður L. Björgvinsson, framkvæmdastjóri Arkís arkitekta, ráðgjafa- og hönnunarsamning fyrir 40 rýma hjúkrunarheimili sem rísa á á Seltjarnarnesi á næstu misserum.
Ein rómaðasta staðsetning Nessins

Bygging hjúkrunarheimilis á Seltjarnarnesi markar tímabót í byggingarsögu bæjarfélagsins, en það verður staðsett á einum rómaðasta útsýnisstað bæjarins við Safnatröð. Á heimilinu verður lögð áhersla á að umhverfi og aðbúnaður líkist sem mest hefðbundnum einkaheimilum þar sem ólíkum þörfum heimilisfólks er mætt. Byggingin er á einni hæð, án stiga og gott aðgengi er að henni. Bílastæði og aðstaða til útiveru eru einnig opin og afar aðgengileg. Hið nýja hjúkrunarheimili býður upp á aðstæður sem stuðla að vellíðan þeirra sem þar dvelja, jafnt heimilismanna sem starfsfólks og aðstandenda. Forsendur byggingarinnar grundvallast á stefnu og viðmiðum velferðarráðuneytisins í öldrunarmálum.
Hjúkrunarheimili, ráðgjafa- og hönnunarsamningur

Mynd:
Í fremri röð eru þau Þorvarður L. Björgvinsson framkvæmdastjóri Arkís og Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness sem undirrituðu samninginn.
Fyrir aftan standa Gísli Hermannsson sviðsstjóri umhverfissviðs Seltjarnarness, Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís, Gunnar Lúðvíksson fjármálastjóri Seltjarnarness og Þórður Ólafur Búason skipulags- og byggingarfulltrúi Seltjarnarness.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?