Fara í efni

Opnað fyrir umsóknir um sumarstörf 24. mars

Seltjarnarnesbær er eitt bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem býður öllum námsmönnum, sem lokið hafa 8. bekk og hafa lögheimili á Seltjarnarnesi, sumarvinnu. Framtakið er ekki nýtt af nálinni en í kjölfar kreppunnar þegar ljóst var að námsmenn færu á mis við almenn störf, sem þeim höfðu staðið til boða, ákvað Seltjarnarnesbær að venda sínu kvæði í kross og bjóða öllum nemum eftir áttunda bekk sumarstarf.

Seltjarnarnesbær er eitt bæjarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem býður öllum námsmönnum, sem lokið hafa 8. bekk og hafa lögheimili á Seltjarnarnesi, sumarvinnu. Framtakið er ekki nýtt af nálinni en í kjölfar kreppunnar þegar ljóst var að námsmenn færu á mis við almenn störf, sem þeim höfðu staðið til boða, ákvað Seltjarnarnesbær að venda sínu kvæði í kross og bjóða öllum nemum eftir áttunda bekk sumarstarf. Þetta frumkvæði bæjarins mæltist svo vel fyrir að það er enn við lýði. Bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir, ákvað að leggja fjármuni í þetta verkefni og er ástæðan ekki síst það forvarnargildi sem það hefur fyrir ungmennin að vera í skipulögðu starfi yfir sumartímann. Um leið erum við stolt af því að vera eina bæjarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem leggur fjármuni í að veita öllum námsmönnum, sem búa á Seltjarnarnesi, þ.m.t. háskólafólki, tækifæri til að afla sér tekna og huga um leið að umhirðu bæjarins sem og að fylla upp í þau skörð sem skapast við sumarleyfi starfsmanna hjá bænum.

Sumarstörf hjá Seltjarnarnesbæ eru tvískipt:

Annars vegar er um að ræða Vinnuskóla fyrir nemendur í 8. og 9. bekkjum (fædda 1999 og 2000) sem fá vinnu 3,5 tíma á dag fjóra daga vikunnar yfir 7 vikna tímabil. Einnig vinnuskóla fyrir nema í 10. bekk (fædda 1998) sem fá vinnu 7 stundir á dag 4 daga vikunnar. Ekki er unnið á föstudögum, en starfstímabil Vinnuskólans nær frá 10. júní til 25. júlí. Umsóknarfrestur fyrir Vinnuskólann er 1. maí 2014, en hann verður settur 10. júní í Valhúsaskóla.

Hins vegar er um að ræða sumarstörf fyrir nemendur 17 ára og eldri (fædda frá 1997), en þar er um að ræða almenn garðyrkjustörf, verkamannastörf, skapandi sumarstörf og ýmis afleysingastörf. Einnig er ungmennum 20 ára og eldri (fæddum frá 1996) boðin störf sem flokkstjórar og leiðbeinendur vegna ævintýra- og leikjanámskeiða og smíðavallar. Umsóknarfrestur fyrir sumarstörfin er til 15. apríl.

Opnað verður fyrir umsóknir í Vinnuskóla og sumarstörf  24. mars á heimasíðu bæjarins, seltjarnarnes.is. 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?