Á leikskólum Seltjarnarness er unnið markvisst með notkun tölva í elstu árgöngunum. Upphafið að þessu starfi má rekja til þróunarverkefnis sem stóð yfir frá 1998-2000 og fjallaði um skapandi notkun tölva í leikskólastarfi.

Verkefnið gafst vel og hefur síðan verið byggt ofan á niðurstöður þess. Báðir leikskólar bæjarfélagsins búa yfir nýjum tölvukosti sem nýttur er í skipulagðar tölvustundir og valstundir fyrir fjögurra og fimm ára börn.
Unnið er með sérstök kennsluforrit er taka á ákveðnum þáttum sem og myndsköpun og fleira. Tölvustundirnar eru hluti af því markmiði leikskólans að börn verði virkir þátttakendur í þjóðfélagi sem breytist ört en þar gegnir upplýsingatækni sífellt stærra hlutverki.