Fara í efni

Nýtt skipurit Seltjarnarnesbæjar

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi þann 20. febrúar sl., tillögu ráðgjafafyrirtækisins HLH ehf., um nýtt skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins. Breytingarnar taka formlega gildi þann 1. mars nk. 

Nýtt skipurit Seltjarnarnesbæjar,

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi þann 20. febrúar sl., tillögu ráðgjafafyrirtækisins HLH ehf., um nýtt skipurit yfirstjórnar sveitarfélagsins. Með nýju skipuriti er stjórnsýslusviðum breytt og verða þau nú fjögur. Skýrsla Haraldar L. Haraldssonar ráðgjafa varðandi úttekt á stjórnsýslu, rekstri og fjárhag Seltjarnarnesbæjar verður kynnt stjórnendum næstu daga. Einnig ákvað bæjarstjórn að kynna skýrsluna á opnum íbúafundi miðvikudaginn 26. febrúar kl. 19:30 í Félagsheimili Seltjarnarness.

Á íbúafundinum munu Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Haraldur L. Haraldsson, hagfræðingur og skýrsluhöfundur, kynna og fara yfir helstu niðurstöður sem koma fram í skýrslunni. Í henni er að finna fjölmargar ábendingar  um hvernig bæta megi reksturinn og verða þær teknar til skoðunar með stjórnendum bæjarins.

Nýtt stjórnskipulag, sem tekur formlega gildi 1. mars nk., miðar að því að færa uppbyggingu og virkni stjórnskipulags Seltjarnarnesbæjar til þess sem almennt gildir hjá sveitarfélögum af sambærilegri stærð, með því að gera rekstur bæjarins einfaldari og skilvirkari. Skipurit þarf að styðja við góða stjórnarhætti með skýrum hlutverkum einstakra eininga. Í nýju skipuriti er stjórnsýslu og rekstri skipt upp í fjögur svið eins og lagt er til í skýrslu Haraldar L. Haraldssonar, hagfræðings. Á hverju sviði er einn sviðsstjóri sem ber ábyrgð gagnvart bæjarstjóra á öllum málaflokkum, sem undir sviðið heyra. Nýtt skipurit kallar ekki á aukinn launakostnað eða mannaráðningar.

Samkvæmt nýju skipulagi verða svið Seltjarnarnesbæjar nú fjögur og verður skipting þeirra með eftirfarandi hætti:

Fjölskyldusvið

Skipulags- og umhverfissvið

Fjármálasvið

Þjónustu- og samskiptasvið

Bæjarstjórn vill lýsa ánægju sinni með nýtt skipurit bæjarins. Lykilorð þess er samvinna og er því ætlað að skýra hlutverk og ábyrgð og stuðla þannig að góðri stjórnsýslu, vönduðum ákvörðunum og skilvirkri framkvæmd þeirra. Verkefni sveitarfélaga eru flókin í eðli sínu og því er nauðsynlegt að vanda til verka við útfærslu skipuritsins, þannig að fyrir liggi með skýrum hætti hvar ábyrgð liggur á framkvæmd, innleiðingu, eftirfylgni og eftirliti.

Með því að sameina verkefni félagsþjónustu og fræðslumála á undir nýju sviði, Fjölskyldusvið, er undirstrikað mikilvægi þess að þeir starfsmenn, sem koma að málefnum fjölskyldna, vinni náið saman. Þetta er í samræmi við þróun sem hefur átt sér stað hérlendis á undanförnum árum, sem í dag má m.a. sjá í áherslum félags- og barnamálaráðuneytis. Baldur Pálsson mun veita Fjölskyldusviði forstöðu.

Með því að sameina verkefni framkvæmdasviðs, skipulags- og byggingarsviðs undir nýju sviði, Skipulags- og umhverfissvið, er undirstrikað mikilvægi þess að þeir starfsmenn, sem koma að þessum málum vinni náið saman undir einni yfirstjórn. Skipulags- og byggingarmál snúast í dag að stórum hluta um ítarlega og vandaða stjórnsýslu. Lagaleg álitamál verða jafnframt æ algengari í þessum málaflokki. Starfs sviðsstjóra Skipulags- og umhverfissviðs verður auglýst.

Menningar- og samskiptasvið mun framvegis heita Þjónustu og samskiptasvið, undir það svið hafa verkefni er snúa að rafrænni stjórnsýslu, persónuverndarmálum, gæðastjórnun, lögfræði og málarekstur og skjalavarsla verið færð og bætast við önnur verkefni sviðsins. María Björk Óskarsdóttir mun veita Þjónustu og samskiptasviði forstöðu.

Fjármálasvið mun áfram heita Fjármálasvið, en á sviðinu hefur verið skerpt á fjármálaeftirliti, hagstjórn og áætlanagerð, auk mannauðsmála og kjaramála. Síðastliðið sumar var samþykkt ráðning á löggiltum endurskoðanda á fjármálasviði m.a. til að draga úr þörfinni á aðkeyptri sérfræðiþjónustu við ársreikning bæjarins. Gunnar Lúðvíksson mun veita Fjármálasviði forstöðu.

Það er markmið og hugsjón Seltjarnarnesbæjar að með ofangreindum breytingum muni  boðleiðir styttast og verða einfaldari. Markvissari stjórnun mun einnig hafa í för með sér bætt skipulag og aukna skilvirkni, sem aftur verður til þess að nýta fjármuni betur og bæta þjónustu við bæjarbúa.

Skipurit


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?