Á fundi stjórnar SSH 4. febrúar var undirritaður nýr þjónustusamningur milli Fjölsmiðjunar annars vegar og Seltjarnarnessbæjar, Reykjavíkurborgar, Mosfellsbæjar, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar hins vegar.
Í samningnum er skilgreint samstarf sveitarfélaganna og Fjölsmiðjunnar um verkþjálfun ungs fólks á aldrinum 16 – 24 ára sem hætt hefur námi og/eða ekki náð fótfestu á vinnumarkaði. Samningur þessi kemur í stað eldri samnings, en samstarf sveitarfélaganna og Fjölsmiðjunnar hefur staðið í liðlega áratug.
Samningur þessi er til eins árs, og á samningstímanum verður einnig unnið að því að leita leiða til að styrkja rekstur Fjölsmiðjunnar til lengri tíma, m.a. með því að tengja starfið betur við skólakerfið og með breikkun á núverandi aðstandendahópi.
Talið frá vinstri: Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi í Reykjavík, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Gunnars Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ og formaður SSH, Margrét Friðriksdóttir, skólameistari Menntaskólans í Kópavogi og stjórnarformaður Fjölsmiðjunnar, Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarness og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs