Eins og sjá má hefur heimasíða bæjarins tekið umtalsverðum breytingum og verið er að vinna í sambærilegum breytingum fyrir helstu stofnanir bæjarins.
Eins og sjá má hefur heimasíða bæjarins tekið umtalsverðum breytingum og verið er að vinna í sambærilegum breytingum fyrir helstu stofnanir bæjarins.
Helsta áherslubreytingin lýtur að viðmóti vefjarins en meiri áhersla er á að gera þjónustu bæjarins sýnilegri og aðgengilegri. Nú er í fyrsta sinn boðið upp á öfluga leitarvél á heimasíðunni.
Meðal annarra nýjunga má nefna göngu- og örnefnakort sem komin eru á síðuna en eftir er að útfæra þau nánar.