Fara í efni

Ný og glæsileg aðstaða skólahljómsveita í Tónlistarskóla Seltjarnarness

Nú hefur framkvæmdum á nýrri og glæsilegri aðstöðu fyrir lúðrasveitina í Tónlistarskólanum verið lokið. Sameinuðu voru tvö rými og hljóðeinangruð, þá var rýmið parketlagt, lagðar voru raflagnir til að auðvelda tengingu rafhljóðfæra og tölva sem sífellt eru meira notaðar við tónlistarflutning og tónlistarstjórnun.

Kári H. EinarssonNú hefur framkvæmdum á nýrri og glæsilegri aðstöðu fyrir lúðrasveitina í Tónlistarskólanum verið lokið. Sameinuðu voru tvö rými og hljóðeinangruð, þá var rýmið parketlagt, lagðar voru raflagnir til að auðvelda tengingu rafhljóðfæra og tölva sem sífellt eru meira notaðar við tónlistarflutning og tónlistarstjórnun. Í salnum er gert ráð fyrir fullkomnu hljóðkerfi, skjávarpa og hljóðnemum. Ljóst er að þessi aðstaða mun gjörbreyta allri starfsemi hljómsveitanna.

Kári Húnfjörð Einarsson aðstoðarskólastjóri Tónlistarskólans og stjórnandi lúðrasveitarinnar segir þetta mikla breytingu fyrir lúðrasveitina og skólann í heild. Gæði húsnæðis s.s. einangrun og loftræsting skiptir miklu máli fyrir tónlistarnema og stjórnandann til að ná til allra í hópnum.  Kári segir húsnæðið huggulegt og gott sé að vinna í því.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?