Fara í efni

Ný gönguleið vegna framkvæmda á Hrólfsskálamel

Vegna byggingarframkvæmda á Hrólfsskálamel  verður ný gönguleið skólabarna í Mýrarhúsaskóla, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, opnuð nk. mánudag 12. janúar. 

Vegna byggingarframkvæmda á Hrólfsskálamel  verður ný gönguleið skólabarna í Mýrarhúsaskóla, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, opnuð nk. mánudag 12. janúar. 


Skólaliði mun verða við gangbrautarljósin við Suðurströnd/Nesveg í næstu viku og leiðbeina skólabörnum með nýju gönguleiðina. 

Ný gangbraut verður merkt yfir Hrólfsskálamel, milli göngustígs og skólalóðar og hlið opnað á girðingu skólalóðar við gangbrautina. 

Þeir foreldrar sem aka börnum sínum til skólans eru beðnir um að aka alls ekki um Hrólfsskálamel, heldur  hleypa börnunum út á bílastæði skólans við Nesveg eða við Skólabraut.
Gönguleið vegna framkvæmda á Hrólfsskálamel

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?