Fara í efni

Ný erindisbréf fastanefnda

Bæjarstjórn samþykkti nýlega drög að uppfærðum erindisbréfum eftirfarandi fastanefnda Seltjarnarness; jafnréttisnefndar, íþrótta- og tómstundaráðs, menningarnefndar, fjárhags- og launanefndar, félagsmálasviðs, skipulags- og mannvirkjanefndar, skólanefndar og umhverfisnefndar.

Nýju erindisbréfin hafa verið í vinnslu um nokkurra ára skeið en þeim er ætlað að skýra betur starfsemi nefndanna, samræmingu verkefna þeirra og aðlögun að upplýsinga- og stjórnsýslulögum.

Þar koma fram upplýsingar eins og hverjir eru starfsmenn nefndanna, hver eru meginhlutverk nefndanna og hvaða leiðir skulu farnar til að vinna að stefnu bæjarstjórnar í viðkomandi málaflokki.

Þá er einnig greint frá fundum og starfsháttum og tiltekið hvenær nefndarmaður er vanhæfur til ákvarðanatöku eða atkvæðagreiðslu skv. Stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?