Fara í efni

Neyðarstjórn Seltjarnarnesbæjar fundar vegna jarðhræringa

Í ljósi þess að höfuðborgarsvæðið er á hættustigi vegna jarðhræringa og jörð skelfur enn er mikilvægt að allir hugi að vörnum og viðbúnaði við jarðskjálfta sem og kynni sér rýmingaráætlun höfuðborgarsvæðisins. Sjá nánar: 

Í ljósi þess að höfuðborgarsvæðið er á hættustigi vegna jarðhræringa og jörð skelfur enn fundaði Neyðarstjórn Seltjarnarnesbæjar sérstaklega um stöðu mála og virkjaði viðeigandi ferla. Starfsmenn Eignaumsýslu Seltjarnarnesbæjar sem bera ábyrgð á fasteignum bæjarins hafa verið að huga að forvörnum, veggfesta þarf hluti og huga að lausum munum sem geta fallið á fólk. Stjórnendur undirstofnana ennfremur upplýstir og hvattir til að skoða málin sérstaklega á sínum vinnustöðum sem og að kynna sér rýmingaráætlun höfuðborgarsvæðisins. 


Íbúar eru hvattir til þess að gera slík hið sama hjá sér enda mjög mikilvægt að allir hugi að vörnum og viðbúnaði við jarðskjálfta sem og að vera meðvitaðir um rýmingaráætlun höfuðborgarsvæðisins sem er að finna hér

Jarðskjálftar: Varnir og viðbúnaður sjá hér (líka á ensku og pólsku):


KRJÚPA - SKÝLA - HALDA er orðaröð sem rétt er að leggja á minnið.

Húsgögn:
Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgögnin fari af stað í jarðskjálfta. Munið hins vegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgögn velti. Festið létta skrautmuni með kennartyggjó.

Lausir munir og skrautmunir:
Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Hægt er að nota kennarartyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta. Þungur borðbúnaður og hlutir eru best geymdir  í neðri skápum, helst lokuðum.

Kynditæki og ofnar:
Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festið hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.

Myndir, ljósakrónur:
Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.

Skápahurðir:
Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim.

Svefnstaðir:
Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi.

Loft og gólf:
Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum.

Rúður:
Byrgið fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.

Tryggingar:
Bætur Náttúruhamfaratryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar, sem eru skyldutryggingar.

Útvarp og tilkynningar:
Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi. Gott er að hafa útvarp með langbylgju ef FM sendar detta út. Þá er hægt að hlusta á útvarp í bílum.

Símar:
Farsímar duga skammt ef rafmagn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið eða hleðslubanka til að hlaða farsíma. Sendu SMS til þinna nánustu í stað þess að hringja (sérstaklega eftir stóran jarðskjálfta) til að minnka álag á símkerfi í hamförum.

Á jarðskjálftasvæðum er hægt að draga úr afleiðingum jarðskjálfta með jarðskjálftaæfingum til að vera betur viðbúin þegar stór skjálfti verður:


KRJÚPA - SKÝLA - HALDA er orðaröð sem rétt er að leggja á minnið.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?