Fara í efni

Neshlaup Trimmklúbbs Seltjarnarness á laugardaginn 13. maí

Laugardaginn 13. maí næstkomandi stendur Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS) fyrir Neshlaupinu sem nú er haldið í 18. sinn. Neshlaupið nýtur mikilla vinsælda meðal götuhlaupara og skemmtiskokkara.

Fáni Trimmklúbbs SeltjarnarnessLaugardaginn 13. maí næstkomandi stendur Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS) fyrir Neshlaupinu sem nú er haldið í 18. sinn. Neshlaupið nýtur mikilla vinsælda meðal götuhlaupara og skemmtiskokkara. Rúmlega 30 félagar í trimmklúbbnum sjá um framkvæmd hlaupsins en að auki er sjúkraþjónusta á bakvakt og lögregla fylgir hlaupurunum í upphafi. Tímataka er í höndum starfsmanns Frjálsíþróttasambands Íslands.

Að þessu sinni verður skráning í Áhaldahúsi Seltjarnarness, Bygggörðum 1, frá klukkan 9 á laugardagsmorguninn en hlaupið hefst þaðan klukkan 11 að lokinni upphitun sem þjálfarar TKS sjá um. Þetta er í fyrsta sinn sem ekki er hlaupið frá Sundlaug Seltjarnarness, en nú standa yfir gagngerar breytingar á henni og hún því lokuð.

Aldursflokkar og vegalengdir

Hægt er að velja um þrjár vegalengdir í hlaupinu, 3,4 km, 7,5 km og 15 km. Keppt er í fjórum aldurshópum, 16 ára og yngri (þ.e. nemendur í 10. bekk og yngri), 17-34 ára, 35-49 ára og 50 ára og eldri. 3,4 kílómetrarnir eru í raun skemmtiskokk, enda ekki tímataka á þeirri vegalengd, og því tilvalið fyrir fjölskyldur að draga fram íþróttaskóna og vera með í skemmtilegri tilbreytingu.

Skráning, keppnisgjald og verðlaun

Skráningargjald er 600 krónur fyrir fullorðna en 300 krónur fyrir 16 ára og yngri (fædda 1990 og síðar).  Hámarksgjald fyrir fjölskyldu er 1.200 krónur.

Veittir eru verðlaunapeningar fyrir fyrstu þrjú sæti í öllum aldursflokkum í vegalengdum þar sem tímataka fer fram en einnig fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í 3,4 km. Allir sem ljúka hlaupinu fá markpening og að hlaupinu loknu verða dregnir út fjölmargir útdráttarvinningar.

Nánari upplýsingar á: http://www.hlaup.is  og http://www.tks.is




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?