Helgina, 12. – 13. febrúar 2005, var haldið Íslandsmót barnaskólasveita í skák. Tíu nemendur Mýrarhúsaskóla tóku þátt í mótinu og skipuðu þau sér í tvær sveitir undir nafni Mýrarhúsaskóla.
Alls tóku 25 sveitir þátt í Íslandsmótinu. Sigurvegari á mótinu varð a-sveit Rimaskóla. Í 2. sæti varð a-sveit Salaskóla og í 3. sæti a-sveit Barnaskóla Vestmannaeyja. A-sveit Mýrarhúsaskóla hafnaði í 15. - 16. sæti og b-sveitin í 20. – 22. sæti.
Að loknum fyrri mótsdeginum var a-sveit Mýrarhúsaskóla í hópi efstu sveita en tefldi við tvær sterkustu sveitirnar á mótinu seinni daginn. Alls voru tefldar 9 umferðir samkvæmt Monrad-kerfi.
Meðf. myndir af nemendum Mýrarhúsaskóla eru fengnar af síðu Skáksambands Íslands.
Meðf. myndir af nemendum Mýrarhusaskóla eru fengnar af síðu Skáksambands Íslands.