Nemendur í 10. bekk Valhúsaskóla var boðið að skoða mannvirki Hitaveitu Seltjarnarness í gær. Skoðuð var borhola nr. 12 við hákarlaskúrinn en hún er rúmlega 2700 metra djúp og er vatnið 109 gráðu heitt sem þar dælist upp.
Nemendur í 10. bekk Valhúsaskóla var boðið að skoða mannvirki Hitaveitu Seltjarnarness í gær. Skoðuð var borhola nr. 12 við hákarlaskúrinn en hún er rúmlega 2700 metra djúp og er vatnið 109 gráðu heitt sem þar dælist upp. Síðan var borhola skoðuð við Bygggarða 8, en á síðasta ári var byggt nýtt hús yfir hana.
Hópurinn endaði svo við Lindarbraut í stjórnstöð hitaveitunnar þar sem Stefán Eiríkur Stefánsson hitaveitustjóri og Páll Sigurðsson aðstoðarhitaveitustjóri sýndu krökkunum stýrikerfi Hitaveitunnar.
Að lokum afhenti bæjarstjóri krökkunum árskort í Sundlaug Seltjarnarness, en eins og fram hafði komið í kynningunni um Hitaveitu Seltjarnarness er allt heitt vatn á Nesinu komið frá borholunum á Vestursvæðunum.