Fara í efni

Námskeið fyrir leiðbeinendur vinnuskóla Seltjarnarness

Seltjarnanesbær leggur mikla áherslu á öryggi unglinganna í vinnuskólanum og því er afar mikilvægt að fá  tækifæri til þess að hitta leiðbeinendur áður en Vinnuskólinn sjálfur hefst segir Fjóla Guðjónsdóttir forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá.
Seltjarnanesbær leggur mikla áherslu á öryggi unglinganna í vinnuskólanum og því er afar mikilvægt að fá  tækifæri til þess að hitta leiðbeinendur áður en Vinnuskólinn sjálfur hefst segir Fjóla Guðjónsdóttir forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá.  
Það er mikil ábyrgð að stjórna vinnuhópi unglinga enda margir krakkar í sinni fyrstu vinnu.  Við förum því yfir hvaða reglur gilda um vinnu unglinga, helstu ástæður slysa og mikilvægi þess að leiðbeinendur skipuleggi daginn til þess að koma í veg fyrir slys og tjón á búnaði og tækjum bæjarins.  
Leiðbeinendur Vinnuskólans hefja vinnu á morgnanna áður en unglingarnir mæta til vinnu  og við hvetjum þau til þess að nota þann tíma til þess að skipuleggja og fara yfir  verkefni dagsins t.d. hvaða persónuhlífar þarf að taka með svo sem vesti og keilur ef verið er að vinna nálægt umferð. Farið er yfir rétta og örugga notkun sláttuvéla og sláttuorfa. 
Það er nauðsynlegt að ganga úr skugga um að þeir sem eiga að vinna á þessum tækjum kunni á þau.  Ekki er hægt að ganga út frá því að allir kunni að slá á sláttuvél og geri það rétt.  Akstur á ökutækjum í eigu bæjarins er einnig hluti af námskeiðinu, sem dæmi má nefna frágang tækja á pallbílum sem og almennt hugarfar við akstur, bílbeltanotkun og mikilvægi þess að  virða hraða- og umferðarreglur.  Einnig er farið yfir hvernig bregðast á við ef upp koma óvænt tilvik og hvernig stjórna á aðstæðum ef það verður slys.  

Leiðbeinendur vinnuskólans fara á námskeið í skyndihjálp og fá því einnig fræðslu svo þau geti brugðist rétt við hverju sinni.  Allt er þetta liður í því að gera góða starfsmenn ennþá betri og óhætt er að fullyrða að slysa- og tjónavarnir eru í góðum farvegi hjá Vinnuskóla Seltjarnarness.   

 
 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?