Fara í efni

Næturstrætó snýr aftur um helgina

7 næturleiðir aka úr miðbænum og út í hverfin á aðfaranóttum laugardags og sunnudags. Leið 107 mun aka á Seltjarnarnes frá Hlemmi kl. 01:20, 02:00, 02:40 og 03:20. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, um Suðurgötu, Hjarðarhaga, Ægissíðu, Nesveg, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd og Eiðisgranda.

Næturstrætó snýr aftur aðfaranótt laugardags 9. júlí eftir um tveggja ára hlé.

Ný stjórn Strætó kom saman sl. föstudag og var mikill samhugur í stjórnarmönnum um að láta næturstrætó aka úr miðbænum um helgar. Stjórnin er með þessu að svara ákalli íbúa höfuðborgarsvæðisins um aukna þjónustu og fjölbreyttari samgöngukostum út úr miðborg Reykjavíkur um helgar.

Neðangreint fyrirkomulag verður til reynslu fram í september, en þá verður þjónustan metin á ný út frá notkun leiðanna og ánægju viðskiptavina.


7 næturleiðir munu nú aka frá miðbænum og út í hverfin, en árið 2020 voru þessar leiðir 5.



  • Næturstrætó ekur úr miðbæ Reykjavíkur á aðfaranóttum laugardags og sunnudags.
  • Aðeins er hægt að taka næturstrætó út úr miðbænum en ekki til baka.
  • Vagnarnir aka ekki skv. hefðbundinni tímatöflu. Eingöngu er gefinn upp brottfaratími úr miðbænum og vagnarnir aka inn í hverfin án þess að tímajafna. Viðskiptavinir sem ætla að nýta vagninn á miðri leið er bent á að fylgjast með staðsetningu vagna í rauntíma í Klapp appinu, Strætó appinu eða inn á straeto.is

Leið 107 mun aka á Seltjarnarnesið sem hér segir:

Ekur frá Hlemmi kl. 01:20, 02:00, 02:40 og 03:20. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, um Suðurgötu, Hjarðarhaga, Ægissíðu, Nesveg, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd og Eiðisgranda.


Eftirfarandi 7 leiðir aka úr miðbænum um helgar:



Leið 101: Hafnarfjörður ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:20, 02:25 og 03:45. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Snorrbraut, Kringlumýrarbraut og inn í Hamraborg. Eftir það ekur leiðin Hafnarfjarðarveg, Reykjavíkurveg, Lækjargötu (í Hafnarfirði), Hringbraut (í Hafnarfirði), Strandgötu, Ásbraut og inn á Velli.



Leið 102: Kópavogur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:40, 02:40 og 03:40. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugarveg, Suðurlandsbraut, Grensásveg og Kringlumýrarbraut. Eftir það fer leiðin um Smára, Lindir, Salir Kóra og Hvörf í Kópavogi.

 

Leið 103: Breiðholt ekur frá Hlemmi kl. 01:30, 02:40 og 03:50. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, Háskóla Íslands, um Bústaðarveg og upp í Mjódd. Eftir viðkomu í Mjódd þá ekur leiðin hring í Breiðholti um Skóga, Sel, Fell, Hóla og Bakka.

 

Leið 104: Úlfarsárdalur ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. X, X og X. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugarveg, Suðurlandsbraut, Vesturlandsveg, inn í Grafarholt og Úlfarsárdal.

 

Leið 105: Norðlingaholt ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:29, 02:29 og 03:29. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Borgartún, Sæbraut, Vesturlandsveg, inn í Árbæ, Selás og Norðlingaholt. 

 

Leið 106: Mosfellsbær ekur frá biðstöðinni Lækjartorg B kl. 01:34, 02:34 og 03:34. Leiðin ekur upp Hverfisgötu, Laugaveg, Kringlumýrarbraut, Miklubraut, Vesturlandsveg, upp Höfðabakka og inn í Grafarvog þar sem hún ekur um Foldir, Rima, Spöng, Staði og inn í Mosfellsbæ.

 

Leið 107: Seltjarnarnes ekur frá Hlemmi kl. 01:20, 02:00, 02:40 og 03:20. Leiðin ekur niður Hverfisgötu, fram hjá Ráðhúsinu, um Suðurgötu, Hjarðarhaga, Ægissíðu, Nesveg, Suðurströnd, Lindarbraut, Norðurströnd og Eiðisgranda.

 

Fargjöld í næturstrætó

Viðskiptavinir greiða einfalt fargjald í næturstrætó með því að nota greiðslumiðla á vegum Strætó, þ.e. Klapp korti, Klapp appi, Klapp tíu, Strætókorti eða Strætóappi.

Gerð verður tilraun með að hafa posa um borð næturstrætó. Þeir viðskiptavinir sem vilja staðgreiða með greiðslukorti eða reiðufé greiða 1.000 kr. í næturstrætó. Við vekjum athygli á að vagnstjórar geta ekki gefið til baka.

 

Stök fargjöld í næturstrætó Verð
Fullorðnir 490 kr.
Ungmenni 12-17 ára 245 kr.
Eldri borgarar, 67 ára og eldri 245 kr.
Öryrkjar 147 kr.
Staðgreiðsla með greiðslukorti eða reiðufé 1.000 kr.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?