Fara í efni

Milljón til sérverkefna

Seltjarnarneskaupstað og Grunnskóla Seltjarnarness var á dögunum úthlutað rúmlega einnar milljónar króna styrk til verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD-greiningu.

Seltjarnarneskaupstað og Grunnskóla Seltjarnarness var á dögunum úthlutað rúmlega einnar milljónar króna styrk til verkefna í þágu langveikra barna og barna með ADHD-greiningu.

Styrknum verður ráðstafað til tveggja verkefna, annars vegar verkefnis í umsjón Grunnskóla Seltjarnarness og hins vegar til samstarfsverkefnis grunnskólans og félagsþjónustu bæjarins.

Verkefnastjórn á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga auglýsti í október sl. eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stunings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Verkefnastjórnin tók afstöðu til 125 umsókna, en 36 aðilar fengu boð um styrk. Þegar hefur verið hafist handa við umrædd verkefni hér á Seltjarnarnesi.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?