Á smíðavellinum við Valhúsaskóla er að rísa hið myndarlegasta húsahverfi en fjöldinn allur af krökkum eru þar að smíða daginn út og inn.
Á smíðavellinum við Valhúsaskóla er að rísa hið myndarlegasta húsahverfi en fjöldinn allur af krökkum eru þar að smíða daginn út og inn. Mikill áhugi og sköpunargleði er hjá þeim að byggja húsin sín og þau eru dugleg við að hjálpa hvort öðru.
Ægir Steinarsson og Elísabet Charlotta Ásgeirsdóttir eru leiðbeinendur á smíðavellinum í sumar og segja þau ótrúlegt hvað börnin séu útsjónarsöm og dugleg við smíðarnar.