Áætlað er að um 600 hundruð manns hafi mætt á Fjölskyldudaginn í Gróttu, sem haldinn var hátíðlegur í 12. sinn, laugardaginn 13. apríl.
Áætlað er að um 600 hundruð manns hafi mætt á Fjölskyldudaginn í Gróttu, sem haldinn var hátíðlegur í 12. sinn, laugardaginn 13. apríl.
Gestir létu ekki kuldalegt veður á sig fá heldur bjuggu sig upp og nutu alls þess sem dagurinn hafði upp á að bjóða. Börnin sóttu smiðjur í vitagerð og rannsóknum úr sjávarríkinu, djasstónlistarmenn léku undir berum himni, börnin söfnuðu gersemum úr fjörunni og færri en vildu komust upp í vita. Sóroptimistakonur stóðu vöffluvaktina, en eftirspurnin var svo mikið að soppan var búin mun fyrr en ráð var gert fyrir.
Fræknir sjósundsfélagar stungu sér til sunds frá golfvellinum og syntu yfir í Gróttu þar sem Rótarýfélagar tóku vel á móti hópnum með heitri fiskisúpu.
Áður en eiginleg dagskrá hófst voru Sr. Bjarni Þór Bjarnason og Friðrik Vignisson með stutta hugvekju í tilefni dagsins. Bærinn þakkar öllum gestum fyrir komuna og vonar að þeir hafi notið dagsins.