Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra heldur fund um Hvítbókina á Seltjarnarnesi 21. október kl. 20-22. Fundurinn fer fram í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga í Bókasafni Seltjarnarnaress, við Eiðistorg.

Í fréttatilkynningu á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins segir: „Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra heldur opna fundi um Hvítbók um umbætur í menntamálum um allt land á næstunni. Hann leggur áherslu á þau meginmarkmið að bæta árangur í lestri, bæta námsframvindu í framhaldsskólum og efla verk- og tækninám. „
Framtíðarsýn okkar er að ungt fólk á Íslandi hafi sömu tækifæri og jafnaldrar þess í löndum sem við viljum bera okkur saman við. Til að svo megi verða þarf að veita nemendum á Íslandi menntun sem stenst samanburð við það sem best gerist erlendis“. Fundirnir eru öllum opnir og eru kennarar, foreldrar og aðrir sem láta sig menntamál varða velkomnir."
Sjá nánar á Facebook-síðu um hvítbók: Hvernig getum við bætt menntun barnanna okkar?